|
JAXLAMANNAFÉLAGIÐ: Hjalti Rafn Guðmundsson, janúar 2006.
Hjalti Rafn hefur klifrað í klettum síðustu 14 ár og segist vera rétt að byrja að klifra. Okkur tókst að snúa upp á handlegginn á honum og fá hann til að svara nokkrum spurningum um klifrið.
Hvað ertu gamall?
28.
 |
 |
 |
7a+ þraut í Ailfroide í Frakklandi.
KMH. |
 |
 |
Hvernig byrjaðir þú að klifra?
Ég byrjaði með því að síga fram af tönkum á gamalli línu sem afi hans Gunna átti og með því að kíkja niður í Kalkgryfju. Svo fór ég á námskeið hjá Ísalp sumarið eftir.
Hverjir kenndu á námskeiðinu?
Björn Vilhjálmsson, Snævarr og Guðjón.
Hvernig klifur finnst þér skemmtilegast?
Bara allt, fjölspannaleiðir, stuttar power leiðir, langar úthaldsleiðir og búlder. Og inniklifur.
Mér finnst allt spennandi því maður þarf að leggja mikið á sig til að vera góður í öllu í einu.
Hvar hefurðu klifrað mest?
Í Siurana og á Hnappavöllum.
Hver er erfiðasta leiðin sem þú hefur rauðpunktað?
Mér finnst ég ekki hafa rauðpunktað neitt sérlega erfitt.
En ég hef rauðpunktað la cara que no miente, 8a+ fyrir nokkrum árum. Hún er í Siurana á Spáni. Stutt hoppleið.
 |
 |
| Surprise de chef, Ailfroide, 7b.
KMH. |
 |
 |
 |
...en farið beint af augum?
8a, Lourdes í El Chorro. Flassað eina 7c+/8a og ,,onshightað" nokkrar 7c+ eða flassað.
...hvað með í dóti?
Veit það ekki. Ekkert svaka erfitt. Kannski 5.11 eða eitthvað.
Erfiðasta grjótglíman?
Mmmmm... Ætli það sé ekki 7b+/7c þraut í Fontainbleau og 7b+ í Ailfroide og Stanage, allavega sem ég veit um með gráðu.
Ef þú strandaðir á eyðieyju, hvaða klifursvæði myndirðu vilja að væri á eyjunni?
Siurana, Terradets og Fontainbleau.
Værir þú staddur einhvers staðar annars staðar í lífinu í dag ef þú hefðir ekki byrjað að klifra?
Ég hefði örugglega byrjað fyrr í háskóla býst ég við. Ég hefði örugglega verið þónokkuð á skíðum áfram, líklega orðið heimsmeistari. Ég hefði misst af öllu skemmtilegu klifri og því sem hefur fylgt því. Sem betur fer fór ég að klifra.
 |
 |
 |
Anabolica, 8a Siurana, Spáni.
KMH. |
 |
 |
Æfðirðu markvisst?
Já. Ég æfi markvisst og þónokkuð mikið og reyni að lesa mér til um hvernig aðrir æfa og hvernig íþróttamenn í öðrum greinum æfa og læra af því. Mér finnst gott að lesa um hvernig flinkir klifrarar æfa eins og Ben Moon, Alex Huber og frönsku strætóbílstjórarnir.
Hvert stefnirðu í klifrinu?
Suður, ég er bara rétt að byrja.
Hver er besta leiðin sem þú hefur klifrað?
Hún er örugglega ekki á Hnappavöllum og ekki leið sem ég hef onsightað, ég man ekkert eftir þeim. Ég man eftir leiðum sem ég hef rauðpunktað. Jú reyndar er Sláturhúsið með fínni leiðum á Hnappavöllum -en besta leið sem ég hef klifrað...
Kannski Anabolica (8a) í Siurana. Hún var mjög skemmtilega þegar ég prófaði hana seinast. Þá höfðu tökin öll stækkað og hún var mjög fín.
En skemmtulegustu leiðir sem ég hef prófað hef ég ekki klárað. Leiðirnar verða alltaf skemmtilegri eftir því sem þær verða erfiðari og hreyfingarnar flottari. Oraculo, 8b í El Chorro og Mister Cheki, 8b+ í Siurana. Síðan er frábær tilfinning að fljóta upp 7b og 7c leiðir þegar maður dettur inn í réttan takt -kannski eins og að skíða í púðri.
 |
 |
| Sláturhúsið, 8a, Hnappavöllum.
KMH. |
 |
 |
 |
....en minnisstæðust?
Mér fannst gaman þegar ég fór 5.10 í fyrsta skiptið. Það var í Vatnsdal. Minnisstæðasta leiðin gæti líka verið einhver leið sem ég er ekki búinn að klára. Þá er hún ennþá að naga mig aftan í hnakkanum. Fyrsta 8a leiðin, ég man líka eftir henni (í Montgrony á Spáni).
Hvar áttu heima?
Hjá Stínu.
Ef þú gætir átt annað heimili einhvers staðar annars staðar, hvar væri það?
Í Catalunyu -en svona bara til að skreppa. Myndi ekki nenna að búa þar, það þyrftu að vera fjöll líka. Það væri hægt að vera uppi í Pyreneafjöllum eða Sviss.
Af hverju tókstu að þér umsjón með Klifurhúsinu?
Til þess að hafa stað að æfa á sem ég var sáttur við sjálfur.
Gerir þú eitthvað meira en að klifra, skíða og sjá um Klifurhúsið?
Elda mat, er í skóla að læra lífefnafræði, skoða skíðabæklinga.
Hvar hefurðu klifrað?
Íslandi, Englandi, Spáni, Frakklandi, Bandaríkjunum.
Uppáhalds matur?
Mjög erfið spurning. Oft eitthvað sem ég elda sjálfur. Spænskur og ítalskur matur finnst mér góður. Og eftirréttir.
Áttu leðursófa?
Nei.
Hvað er mikilvægast í lífinu?
Að vera glaður og sáttur til að geta verið góður við aðra. Og heilsan.
Að lokum?
Fólk þyrfti að bera meiri virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu. Siðan þyrfti einhver að fara að setja mig á launaskrá hjá sér sem klifrara.
|