· aðalsíða - allar helstu upplýsingar
· námskeið og æfingar
· hópar
· kynning
· reglur
· starfsfólk
· mót
· myndir
· jaxlamannafélagið
· styrktaraðilar
· Klifurfélag Reykjavíkur

· KLETTAklifursvæði
· FRÉTTIR
· BLOGG
· TENGLAR

· english information

Klifur í Klifurhúsinu
í Klifurhúsinu er stærsti klifursalur landsins. Þar er stunduð grjótglíma sem er eitt afbrigði klettaklifurs. Grjótglíma er einstaklingsíþrótt sem allir geta stundað. Við hvetjum því fólk til þess að líta inn á opnunartíma Klifurhússins og prófa.

Mynd dagsins: Frá öðru grjótglímumóti vetrarins, nóvember 2008. Ljósmynd: Elmar Orri



Klifurfélag Reykjavíkur skorar á stjórnvöld að HÆTTA frekari uppbyggingu ÁLIÐNAÐAR hér á landi, en um vöxt áliðnaðar og áhrif hans á íslenska hagkerfið má lesa í skýrslu KB-banka: Efnahagsfréttir, ágúst 2005 (2 MB)

Hér má svo fræðast enn frekar um fyrirhuguð álver á Íslandi: www.nattura.info




Klifurhúsið on Facebook

   

 

REGLUR KLIFURHÚSSINS

Klifrarar eru ALGJÖRLEGA á eigin ábyrgð

1.
Öllum er skylt að fylgja húsreglunum. Þeir sem ekki fara eftir reglunum geta átt á hættu að vera vísað út.

2.
Aldurstakmark í Klifurhúsið er 13 ár, yngri verða að verða í fylgd fullorðinna.

3.
Farið ekki inn í sal á útiskóm.

4.
Notið búningsklefa, ekki skilja eftir fötin ykkar í salnum.

5.
Allir sem í veggina fara verða að vera í sérstökum klifurskóm eða innanhús íþróttarskóm.

6.
Laust kalk er bannað í Klifurhúsinu.

7.
Sýnið öðrum klifrurum tillitsemi, þeir sem eru í merktum leiðum hafa forgang.

8.
Hvílið ykkur ekki á dýnunni eða skiljið eftir dót, það skapar hættu fyrir aðra klifrara.

9.
Bannað er að standa undir eða í falllínu klifrara.

10.
Bannað er að hlaupa og hoppa á dýnunni, það skapar sömuleiðis hættu fyrir aðra.

11.
Ef festur eru lausar eða snúast, látið strax vita í afgreiðslunni.

Nánari upplýsingar fást í afgreiðslunni.

Góða skemmtun

   
             
  Klifurhúsið: Skútuvogi 1G, 104 Reykjavík | s. 553-9455 | klifurhusid@klifurhusid.is | © Klifurhúsið nema annað sé tekið fram